Friðhelgisstefna
Barberia
461117-1550
Fjarðargötu 19
220 Hafnarfirði
5650065
Skilmálar
Barberia áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.
Greiðslur og verð
Allar greiðslur fara í gegnum öruggt vefsvæði Rapayd eða með millifærslu. Öll verð í netversluninni eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK. Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara. Eftir greiðslu á pöntun fær kaupandi staðfestingu í tölvupósti.
Afhending vöru
Allar pantanir eru að jafnaði afgreiddar næsta virka dag og sending afgreidd innan 3-5 virka daga eða eftir tímasentningarskilmála Íslandspósts. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Af pöntunum dreift af Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Barberia ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Barberia til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda. Frí heimaending er á höfuðborgarsvæðinu ef pantað er fyrir 15000 kr og yfir nema annað komi fram í lýsingu á vöru. Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 24% vsk en sendingakostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram.
Að skipta og skila vöru
Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað. Ef kaupandi vill ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru verður gefin út inneignarnóta eftir að varan er móttekin. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.
Gölluð vara
Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir. Eða endurgreiðum ef þess er krafist. Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.Trúnaður (Öryggisskilmálar) Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.
Lög og varnarþing
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness.
Persónuvernd
Barberia notar vafrakökur í því skyni að bæta vefsíðuna og upplifun viðskiptavina okkar. Vafrakökur gera vefsíðunni kleift að fá nafnlausar upplýsingar um hvernig notendur nota vefinn og auðvelda aðgengi notenda að upplýsingum. Þær geyma engar persónuupplýsingar og engum upplýsingum er deilt með þriðja aðila. Barberia notar einnig Google Analytics og Facebook Pixel til að meðal annars greina hvaðan umferð inn á vefinn er að koma og mæla virkni auglýsinga. Þessar þriðju aðila þjónustur nota sínar eigin vafrakökur til að fylgjast með samskiptum gesta við vefsvæði. Hægt er að breyta stillingum í vafranum sem notaður er svo upplýsingar séu ekki vistaðar án þess að beðið sé um leyfi fyrst.